Sláturgerð.

Sláturgerð í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík

Nemendur í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík í sláturgerð fimmtudaginn 2. nóvember sl.   Þeim fannst þetta mjög àhugavert og skemtilegt ásamt því að læra hvað er notað í lifrarpylsu og blóðmör.  Byrjað var á því að skera mörinn niður og gera allt klárt.

Látum fylgja hér með uppskrift af blóðmör og lifrapylsu.

Blóðmör

Fyrir 8 – 10
Hver vill ekki eiga nóg af blóðmör og lifrarpylsu í frystikistunni áður en vetur gengur í garð? Einu slátri fylgir: Sviðahaus, 2 nýru, lifur, hjarta, mör, frosið blóð, vömb og keppur
Hráefni
1 líter blóð
7 dl vatn
2 msk gróft salt
400 gr haframjöl
500 gr rúgmjöl
500-600 gr mör
Aðferð
Sigtið blóðið og blandið vatni og salti út í ásamt haframjölinu. Látið standa í smá stund á meðan saltið leysist upp og haframjölið blotnar. Setjið rúgmjölið út í ásamt mör og hrærið á meðan. Varist að gera hræruna of þykka.
Felið upp, þ.e. setjið hræruna í keppina. Hafið þá rúmlega hálfa og saumið fyrir. Pikkið með nál lítil göt á hvern kepp og setjið í sjóðandi vatn með salti. Sjóðið í 2 ½ klst.
Það slátur sem á að frysta er sett í frystipoka en gott ráð er að hafa pokana flata með því að hafa þá á bökunarplötu, loka vel og setja strax í frost.

Lifrapylsa

Hráefni

2 lifrar
4 nýru
2 msk gróft salt
6 dl mjólk
1 ½ dl heitt vatn og
½ súputeningur
300 gr haframjöl
400 gr rúgmjöl
300-400 gr smátt skorinn mör

Aðferð

Byrjum á mörnum
Hvort sem gerð er lifrarpylsa eða blóðmör þarf að byrja á því að skera niður mörinn í hæfilega bita. Mælt er með því að skera hann ekki of smátt því þá geta þeir sem ekki vilja mikla fitu tekið bitana frá þegar slátrið er tilbúið. Ef kirtlar fylgja í mörnum eru þeir skornir frá og fleygt. Mörinn er síðan geymdur á köldum stað þar til hann er notaður.
Saumaskapur
Þar næst eru vambir og keppir teknir úr sláturkassanum og allt skolað. Sníða má 4 til 5 keppi úr hverri vömb en keppirnir eru síðan saumaðir saman með sláturgarni og skilið eftir vænt op. Geymið keppina á köldum stað á meðan lifrar- eða blóðmörshræran er löguð.
Himnuhreinsið lifur og nýru með því að klæða þau úr himnunni.
Maukið í matarvinnsluvél. Setjið lifrarhræruna í rúmgott fat, blandið vökva, salti og haframjöli saman við.
Látið standa í um 5 mínútur á meðan saltið leysist upp og haframjölið blotnar.
Hrærið rúgmjöli og mör saman við og passið að hafa hræruna ekki of þykka.
Lifrarhræran er höfð þykkari en blóðmörshræran. Gott er að setja örlítinn sykur út í hræruna, 1-2 tsk.
Hálffyllið keppina og saumið fyrir með bómullargarni. Ágætt er að nota gamaldags rjómasprautu við að koma hrærunni fyrir. Pikkið með nál og setjið út í sjóðandi vatn, sjóðið í 2 ½ klukkutíma. Athugið að salta vatnið.
Ef frysta á keppina eru þeir settir í plastpoka. Þegar slátur er tekið úr kistunni til suðu eru frosnu keppirnir settir út í heitt vatn með salti og soðnir í 3 klukkutíma. Ekki láta slátrið þiðna fyrir suðu.
Þegar slátrið er fryst eru göt pikkuð á keppina þegar suðan kemur upp.

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *