Harðangur og klaustur vorið 2024

Harðangur og klaustur – tvö námskeið í boði

Kennari: Katrín Jóhannesdóttir, textílkennari við Hússtjórnarskólann.

Hvenær: Sunnudaginn 17. mars kl. 11-15 EÐA fimmtudaginn 21. mars kl. 17-21. Hvort námskeið er alls 4 klukkustundir.

Staðsetning: Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Sólvallagata 12, 101 Reykjavík.

Fyrir hverja: Allir velkomnir, bæði byrjendur og lengra komnir.

Taka með: Allt efni er innifalið og áhöld til staðar en gott er að hafa storkaskæri meðferðis og jafnvel stækkunarlampa og/eða gleraugu fyrir þá sem notast við slíkt.

Hússtjórnarskólinn í Reykjavík

Á námskeiðinu læra nemendur grunnatriði í harðangurssaumi með því að sauma nálapúða. Flatsaumsstólpar, varningar, dúfnaaugu og skáspor eru tekin fyrir en einnig verður farið vel í hvernig klippa skal göt í harðangurinn.

Námskeiðið verður haldið í saumastofu Hússtjórnarskólans og boðið verður upp á léttar kaffiveitingar milli þess sem sporin verða tekin. Njótum saumaskapsins saman í þessu sögufræga húsi og upplifum anda Hússtjórnarskólans saman.

Verð: 14.500 kr.

    Velja námskeið: