Útsaumsnámskeið – Skærapúði – harðangur & klaustur

Nú setjum við í gang örnámskeið í harðangurssaumi þar sem saumaður er lítill púði á útsaumsskærin. Á einni kvöldstund verða saumaðir stólpar, vafningar, dúfnaaugu og skáspor.

Kennari:  Katrín Jóhannesdóttir, textílkennari við Hússtjórnarskólann.

Hvenær: mánudagurinn 28. september kl. 17 – 21 Námskeiðið er 4 klst.

Staðsetning:  Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Sólvallagata 12, 101 Reykjavík.

Fyrir hverja: Allir velkomnir, bæði byrjendur og lengra komnir.

Innifalið: Garn og efni í verkefnið, kaffi, te og með’ðí.

Taka með:  Útsaumsskæri, nálar og jafnvel stækkunarlampa og/eða gleraugu fyrir þá sem notast við slíkt. Inniskór.

Námskeiðið verður haldið í saumastofu Hússtjórnarskólans og boðið verður upp á léttar kaffiveitingar milli þess sem sporin verða tekin.  Njótum saumaskapsins saman í þessu sögufræga húsi og upplifum anda Hússtjórnarskólans á notalegu haustkvöldi.

Verð: 14.000 kr.