Námskeið – Nálabók, Skals-bróderí 2023

Þetta námskeið er fullbókað. 

Námskeiðslýsing:

Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Nálabók Skals-bróderí

Nálabók
Skals-bróderí

Kennari:  Katrín Jóhannesdóttir, textílkennari við Hússtjórnarskólann.

Hvenær:  26. janúar og 2. febrúar 2023. kl. 18-21.  Alls 6 klukkustundir.

Staðsetning:  Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Sólvallagata 12, 101 Reykjavík.

Fyrir hverja:  Allir velkomnir, bæði byrjendur og lengra komnir.

Taka með:  Allt efni er innifalið og áhöld til staðar en gott er að hafa storkaskæri meðferðis og jafnvel stækkunarlampa og/eða gleraugu fyrir þá sem notast við slíkt.

Katrín Jóhannesdóttir mun kenna tveggja daga útsaumsnámskeið þar sem verkefnið verður nálabók.  Spor eins og lykkjuspor og fræhnútar, kontórstingur, spíralar og flatsaumur fá að njóta sín.  Munstur er fært yfir á efni með prikk-aðferðinni og farið verður vel í þá aðferð.

Námskeiðið verður haldið í saumastofu Hússtjórnarskólans og boðið verður upp á léttar kaffiveitingar milli þess sem sporin verða tekin.  Njótum saumaskapsins saman í þessu sögufræga húsi og upplifum anda Hússtjórnarskólans á notalegum vetrarkvöldum.

Verð:  19.500 kr.