Opið hús í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík.

Laugardaginn 9 desember n.k. verður opið hús frá 13:30-17:00 í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík,
Sólvallagötu 12.
Sýning á vinnu nemenda, kaffi og kökusala. Allir velkomnir.

Hvetjum eldri nemendur til að koma, hitta vini og kunninga og rifja upp gamla tíma.

Það er mjög gaman að koma í Hússtjórnarskólann, ganga þar um stofur, skoða eldhúsið,
vefstofuna, saumastofuna, handverk nemenda og annað sem er í þessu fallega húsi.
Setjast síðan niður í betri stofuna og fá sér pönnukökur með rjóma eða tertusneið og njóta augnabliksins.

Skólinn tók til starfa 7. febrúar 1942, að Sólvallagötu 12 og hefur verið þar síðan.

Hér eru nokkrar myndir frá opnu húsi. Fjöldi gesta mætti til að njóta veitinga og skoða fallega vinnu nemenda.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *