13. október sl. var fyrra foreldraboð í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík. Það eru tvö foreldraboð á hverri önn en þá bjóða nemendur foreldrum eða öðrum ættingjum til kvöldverðar í skólanum. Tekið er á móti gestum að höfðinglegum sið, með bros á vör í anddyri skólans og gestum boðið til sætis í stofu.
Klukkan 18:30 opnaðist hurðin inn í borðstofuna og Margrét skólameistari bauð alla hjartanlega velkomna og tjáði gestum jafnfram að þegar allir hefðu borðað nægju sína, þá yrði farið í skoðunarferð um skólann undir leiðsögn kennara og nemendur myndu sína verkin sín og að því loknu yrði boðið upp á kaffi og kökur.
Það voru ánægðir gestir sem yfirgáfu skólahúsið þetta kvöld og ekki voru nemendur minna ánægðir með vel heppnað foreldraboð.
Myndir úr foreldraboðinu. ( Smellið á myndirnar til að stækka þær )