Þáttur á RÚV um Hússtjórnarskólann í Reykjavík..

Hússtjórnarskólinn í Reykjavík

17. júní 2021 var mjög skemmtilegur þáttur um Hússtjórnarskólann í Reykjavík á RÚV.

„Dagur í Hússtjórnarskóla Reykjavíkur

Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir hefur verið skólastjóri Hússtjórnarskóla Reykjavíkur frá árinu 1998. Húsið við Sólvallagötu býður gestum upp á að stíga inn í tímavél til ára hinnar heimavinnandi húsmóður. Þar taka svuntuklæddir nemendur slátur, steikja kleinur, sauma barnaföt, vefa teppi og fleira sem Íslendingar nútímans eru flestir farnir að eftirláta öðrum. En nú líður að starfslokum hjá Margréti. Verður dagurinn í hússtjórnarskólanum alltaf eins, eða boða skiptin nýja tíma fyrir skólann?

Umsjón: Fanney Benjamínsdóttir.“

Hússtjórnarskólinn í Reykjavík

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *