- 2828.November.SundayNo events
- 2929.November.MondayNo events
- 3030.November.Tuesday
- 0101.December.Wednesday
- 0202.December.ThursdayNo events
- 0303.December.FridayNo events
- 0404.December.Saturday
Opið hús
Laugardaginn 4. desember verður opið hús frá 13:30-17:00 í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík,
Sólvallagötu 12.
Sýning á vinnu nemenda, kaffi og kökusala. Allir velkomnir.Hvetjum eldri nemendur til að koma, hitta vini og kunninga og rifja upp gamla tíma.
Það er mjög gaman að koma í Hússtjórnarskólann, ganga þar um stofur, skoða eldhúsið,
vefstofuna, saumastofuna, handverk nemenda og annað sem er í þessu fallega húsi.
Setjast síðan niður í betri stofuna og fá sér pönnukökur með rjóma eða tertusneið og njóta augnabliksins.Skólinn tók til starfa 7. febrúar 1942, að Sólvallagötu 12 og hefur verið þar síðan.