Hússtjórnarskólinn

< 2019 >
May 3
  • 03
    03.May.Friday

    Foreldraboð

    18:00 -23:00
    2019-05-03

    Foreldraboðin eru sérstaklega ánægjuleg kvöld í skólanum.  Foreldrum og ættingjum er boðið í skólann, þar sem nemendur taka á móti þeim.  Skólameistari býður síðan gesti velkomna og opnar inn í innri stofu, þar sem nemendur hafa komið fyrir ýmsum kræsingum, sem þeir hafa útbúið.  Gestum boðið í stofu til að gæða sér á veitingum.  Eftir matinn er gestum boðið að skoða vinnu nemenda og skólahúsið en síðan er boðið upp á kaffi og meðlæti.  Fólk situr síðan og spjallar fram eftir kvöldi.