Barna- og unglinganámskeið – Vor 2026

FYRIRSPURNUM UM BARNA- OG UNGLINGANÁMSKEIÐ HÚSÓ ER SVARAÐ Á NETFANGINU: barnanamskeid@husstjornarskolinn.is

Viltu koma á námskeið í Húsó að læra meðal annars að hekla, sauma, prjóna, elda og baka?

Í vor verða haldin tvö slík námskeið, eitt fyrir 4-5 bekk, annað fyrir 6-7 bekk.

Námskeiðslýsing mánudagar 17:00 – 19:00 (4.-5. bekkur)

Leiðbeinendur: Ólöf Rán Pétursdóttir og Ragnheiður Anna Jónsdóttir
Fyrsti tíminn: 26. janúar
Páskafrí: 6. apríl
Síðasti tími: 4. maí

Áhersla verður lögð á:
Matreiðslu, hekl og handavinnu sem hæfir hverjum og einum. Nemendur læra meðal annars:

  •  Helstu undirstöður í matreiðslu, bæði eldamennsku og bakstri. Nemendur læra að fylgja uppskriftum.
  • Helstu undirstöður hekls líkt og loftlykkjur, fastapinna og stuðla. Nemendur læra bæði að fylgja uppskriftum og skapa sjálf eftir eigin hæfni. Nemendur hekla til dæmis litlar töskur.

Námskeiðslýsing miðvikudagar 17:00 – 19:00 (6.-7. bekkur)

Leiðbeinendur: Ólöf Rán Pétursdóttir og Ragnheiður Anna Jónsdóttir
Fyrsti tíminn: 28. janúar
Páskafrí: 8. apríl
Síðasti tími: 6. maí

Áhersla verður lögð á:
Matreiðslu, hekl og handavinnu sem hæfir hverjum og einum. Nemendur læra meðal annars:

  •  Helstu undirstöður í matreiðslu, bæði eldamennsku og bakstri. Nemendur læra að fylgja uppskriftum.
  •  Helstu undirstöður hekls líkt og loftlykkjur, fastapinna og stuðla. Nemendur læra bæði að fylgja uppskriftum og skapa sjálf eftir eigin hæfni. Nemendur hekla til dæmis litlar töskur.

Taka með: Allt efni er innifalið og áhöld til staðar. Nauðsynlegt er að nemendur mæti með inniskó, sérstaklega þegar farið er í matreiðslu.
Staðsetning: Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Sólvallagata 12, 101 Reykjavík.

Námsáætlanir


Skráning hér:
4.-5. bekkur 64.000 kr.
6.-7. bekkur 64.000 kr.

  • Ef einhver ofnæmi eða sérþarfir varðandi mat eru verða slíkar upplýsingar að fylgja skráningu svo við getum undirbúið matreiðslu með fyrirvara út frá því. Ef einhver ofnæmi eru köllum við eftir vottorði vegna þeirra. Einnig ef einhverjar greiningar eru sem gott er fyrir okkur að vita af.
  • Kennsla fer fram á íslensku.
  • FYRIRSPURNUM UM BARNA- OG UNGLINGANÁMSKEIÐ HÚSÓ ER SVARAÐ Á NETFANGINU: barnanamskeid@husstjornarskolinn.is

Sjáumst í Húsó!