Þriggja kvölda námskeið þar sem við förum af stað með að sauma afmælisløber eftir eigin hugmyndum. Løberinn er húllfaldaður og skreyttur hátíðlegum mynstrum eftir eigin höfði – eins og flöggum, pökkum, fígúrum, kökum og þess háttar.
Markmiðið er að gera løberinn að ómissandi hluta hvers afmælisdags á heimilinu!
Mælt er með að þátttakendur hafi einhvern grunn í útsaumi.
Kennari: Katrín Jóhannesdóttir, textílkennari við Hússtjórnarskólann.
Hvenær: fimmtudagarnir 22. október, 5. og 19. nóvember 2026 kl. 18 – 21. Alls 9 klst.
Staðsetning: Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Sólvallagata 12, 101 Reykjavík.
Fyrir hverja: Mælst er til þess að nemendur hafi nokkurn grunn við útsaum. Gert er ráð fyrir þónokkurri heimavinnu og sjálfstæðum vinnubrögðum.
Innifalið: Útsaumsgarn og munsturefni (prikkpappír og -litur), kaffi, te og með’ðí. Rukkað verður sérstaklega fyrir efnið í hvern løber þar sem nemendur ákveða sjálfir stærð.
Taka með: Útsaumsskæri, nálar og jafnvel stækkunarlampa og/eða gleraugu fyrir þá sem notast við slíkt. Inniskór.
Námskeiðið verður haldið í saumastofu Hússtjórnarskólans og boðið verður upp á léttar kaffiveitingar milli þess sem sporin verða tekin. Njótum saumaskapsins saman í þessu sögufræga húsi og upplifum anda Hússtjórnarskólans á notalegum vetrarkvöldum.
Verð: 28.500 kr.

