Kennari: Katrín Jóhannesdóttir, textílkennari við Hússtjórnarskólann.
Hvenær: Mánudaginn 23. febrúar EÐA fimmtudaginn 16. apríl 2026 kl. 17:30 – 20:30 (þrjár klukkustundir).
Staðsetning: Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Sólvallagata 12, 101 Reykjavík.
Fyrir hverja: Allir velkomnir, bæði byrjendur og lengra komnir.
Taka með: Efni og þráður í prufustykki er innifalið og áhöld eru til staðar en gott er að hafa útsaumsskæri og inniskó meðferðis og jafnvel stækkunarlampa og/eða sterku gleraugun fyrir þá sem notast við slíkt.
Námskeiðið verður haldið í saumastofu Hússtjórnarskólans og boðið verður upp á léttar kaffiveitingar milli þess sem sporin verða tekin. Njótum saumaskapsins saman í þessu sögufræga húsi og upplifum anda Hússtjórnarskólans á notalegum vetrarkvöldum.
Verð: 12.500 kr.

