Húllsaumur og horn í húllsaum – Örnámskeið

 

Kennari:  Katrín Jóhannesdóttir, textílkennari við Hússtjórnarskólann.

Hvenær: Mánudaginn 23. febrúar  EÐA fimmtudaginn 16. apríl 2026 kl. 17:30 – 20:30 (þrjár klukkustundir).

Staðsetning:  Hússtjórnarskólinn í Reykjavík, Sólvallagata 12, 101 Reykjavík.

Fyrir hverja:  Allir velkomnir, bæði byrjendur og lengra komnir.

Taka með: Efni og þráður í prufustykki er innifalið og áhöld eru til staðar en gott er að hafa útsaumsskæri og inniskó meðferðis og jafnvel stækkunarlampa og/eða sterku gleraugun fyrir þá sem notast við slíkt.

Námskeiðið verður haldið í saumastofu Hússtjórnarskólans og boðið verður upp á léttar kaffiveitingar milli þess sem sporin verða tekin.  Njótum saumaskapsins saman í þessu sögufræga húsi og upplifum anda Hússtjórnarskólans á notalegum vetrarkvöldum.

Verð: 12.500 kr.